Aðalvalmynd

Ég er búin að vera

Auglýsing

Það eru

Myndir France

Myndir frá FRAKKLANDI :D
http://picasaweb.google.com/ragbbra

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

seinasta bloggið fyrir íslendinga

04. júlí 2008 klukkan 22:09
já þá hafiði það...
Seinasta bloggið fyrir ykkur á íslandi því ég kem heim  á "morgunn".
Held nú samt áfram bloggskrifum nema í þetta skipti á frönsku fyrir frakkana í Frakklandinu :D

Já ekkert smá skrítið að vera inni í herberginu mínu sem er m.a. alveg rosalega tómlegt þó að allt sé í drasli. Er nefnilega búin að taka allt af veggjunum en ekki allt komið ofaní tösku. Frekar slæmt því ég er að fara að leggja af stað til Parísar eftir 7 klukkustundir. Þá þarf allt að vera tilbúið...
ARRRRRGGGG...........

Ef ég hefði ekki fjölskylduna mína hérna til að láta mig vita af því að ég væri að fara í burtu á morgun þá væri ég sko ekki byrjuð að pakka. Er einhvernvegin ekki komin með það í hausinn á mér að ég sé að fara heim. Árið er bara einfaldlega ekki búið fyrir mér. Á ennþá nokkra mánuði eftir, finnst mér. Tíminn líður ALLT of hratt. Þið megið þó ekki taka því illa þó ég sé að sega að ég vilji helst ekki koma heim. Mér þykir alveg rosalega vænt um ykkur. Það er bara svo rosalega skrítið að bara hætta að lifa franska lífinu mínu.

Þegar ég fór frá Íslandi vissi ég að ég myndi koma aftur heim og EKKERT yrði  breytt. En öfugt er farið með Frakkland því ég veit að þegar ég kem aftur verður ALLT breytt. Ég kem aldrei aftur í heilt ár. Ég fer aldrei aftur í skólann klukkan fáranlega snemma. Ég mun ekki hitta hana Ingridi mína í hverju einasta hléi til að borða pain au chocolat.  Ég kem í fríi en ekki sem skiptinemi. Það verður engin Susanna í Valence eða Rutger í Lyon eða Ingrid í Vion. Þau verða öll komin til síns heima. Ég mun sakna þess mest af öllu. En ég veit að ég mun þó sjá þau aftur...

Þið verðið nú að taka vel við mér á íslandinu. ég mun kannski byrja á því að tala við ykkur frönsku en það mun vonandi ganga yfir.
Vonandi.....:D


Ætla ekki að hafa þetta leiðinlega blogg mikið lengra svo ég segi bara takk fyrir þetta æðislega ár og sjáumst heima á Íslandinu góða

Stór koss (gros bisous)

Ragna Björk sem er ennþá í Frakklandi :D

Naesta sunnudag...........

30. júní 2008 klukkan 20:37
VERD EG HEIMA A ISLANDI!!!!!!!!

Ekkert sma kjanaleg tilhugsun.
  • Vera komin heim.
  • Inn i herbergid mitt.
  • Talandi Islensku alla daga.
  • Lifa edlilegu og tilbreytingarlausu lifi.
  • Vera eins og hver annar islendingur.
  • Vera ekki kollud Ranja eda Ranj eda Islendingurinn o.frv.
  • Fara ut i bud an thess ad vera horft a mig med skritnum augum.
  • Thekkja alla sem thekkja mig.
  • Borda ekki ost og dessert i hadeginu og a kvoldin

Thad verdur sko fint ad komast heim. En alveg rosalega skritid.


En komid ad odru og skemmtilegri frettum.
SPANVERJAR URDU EVROPUMEISTARAR og eg var a staersta Fan zone-inu i Austurriki med spaenska fanann a kinninni umkringd FULLT af spanverjum ( og Mexikonum veit ekki hvad their voru ad gera thar :S)
Svo var sungid VIVA Espana alla nottina. Alveg rosalega gaman. Serstaklega af thvi ad 1/10 af ollu Fan Zone-inu voru spanverjar og allir thjodverjarnir hurfu um leid af svaedinu eda logdust pissfullir a jordina og byrjudu ad grenja :D Greyin :D:D

Er enn i Austurriki a midvikudaginn er eg i Thyskalandi og a laugardaginn i Paris og a sunnudaginn a Islandi

Sjaumst seinna

Afmæli

24. júní 2008 klukkan 21:50
Lítil afmæliskveðja til hans Vilmundar Mána sem varð 5 ára í dag

Innilega til hamingju með afmælið þitt :D

Svo ætlaði ég líka bara að monta mig smá að því að ég var að koma frá Marseille með mömmu og pabba í dag.
Svo er eg að fara til Austurríkis í fyrramálið :D:D
liggaligga lá :D:D
Þetta verður líklega næst síðasta bloggið mitt áður en ég fer heim. Kem nefnilega heim frá Austurríki þann 4. júlí og fer til Parísar þann 5. og svo heim til íslands þann 6. Svo ekki mikill tími til að blogga. Reyni samt að skella inn einni færslu í viðbót

Gros bisous.
RAGNA BJÖRK

p.s. Mamma og Pabbi biðja að heilsa :)

17. júní

17. júní 2008 klukkan 16:57
Hæ hó jibbí jeij og jibbí jeij. Það er kominn 17 júní :D

Allavegana þá er allt gott að frétta frá mér. Rigningin heldur áfram að baula á gluggann minn en ég ætla sko rétt að vona að hún fari nú að hætta bráðum. Að minnsta kosti á meðan mamma og pabbi eru í heimsókn!!
Jú því þau eru nú að koma ekki á morgunn heldur hinn eða þann 19 júni, ekki nóg með það þá koma Birna, Siggi, Sindri og Salka í leiðinni :D Það verður sko SVAKA stuð :D
Fjölskyldan mín að fara á taugum. Allt að verða rosa fínt í húsinu, byrjað að elda og læti :D:D haha, þau eru yndisleg

Þá var þessi helgi bæði alveg mögnuð en líka svolítið spes. Fórum til suður Ardéche(héraðið mitt) í AFS helgi með öllum skiptinemunum og þeim sem eru að fara sem skiptinemar. Skemmtum okkur konunglega. Fyrsta daginn var slappað af, skellt upp tjöldunum og haft gama. Annan daginn var svo farið í canoë kennslu fyrir hádegi en eftir hádegi var farið í 8 km ferð á canoë. Rosa gaman ég var reyndar ein á kayak því að Susanna sem var með mér í kennsluni mátti ekki fara með mér niður ánna því að hún er búin að slíta í sér krossband í hnénu( ekki mér að kenna gerðist á skíðum) svo hún þurfti að vera með kennaranum sem gerði það að verkum að mér var hent á kayak og svo var brunað af stað :D Ótrúlega gaman. Varð reyndar alveg RENNANDI BLAUT en það var bara gaman
þriðja daginn máttum við svo velja hvort við vildum fara í klifur, tarzan í trjánum eða hellaskoðun fyrir hádegi. Ég valdi hellaskoðun og vorum við átta sem völdum það. VÁ GEÐVEIKT!!!!! Við völdum "æfintýra hellinn" sem var sko gott val, en drullugt. Ég, Ingrid, Elisabeth, Rutger, Khoi, Jordan, Sophie og Hiroki lögðum af stað inn í pínkulítið gat á litlu fjalli. Þar skriðum við út um allt og við gátum næstum því aldrei gengið upprétt. Urðum meira að minna að skríða eins og snákar ut um allt. Í lokinn þurftum við að hoppa út í neðanjarðar á sem var ísköld eða um 10° sagði leiðsögumaðurinn. úff... missti andann í nokkrar sek. Varð rennandi blaut frá hvirfli til ilja. Þegar við komumst loks út úr ánni var erfiðasti parturinn eftir. Eða gat á stærð við tölvuskjáinn minn í um 10 metra með fullt af krókum og drullu og ógeði. En við hinn endann var útgönguleiðin! Var ekkert smá fegin að komast út í ferskt loft.
Komum á tjaldstæðið og tókum saman tjaldið okkar og héldum af stað heim. En þó ekki fyrr en ég var búin að knúsa alla bless og þá helst þá sem ég mun kannski ALDREI aftur sjá!!! Spáiði í því. Aldo sem kemur frá Chili fer nefnilega ekki til Parísar í lokinn. Hann er að fara með fjölskyldunni sinni í evrópureisu!! Svo ef ég vil sjá hann aftur þá þarf ég að fara til CHILI!!!! Ekkert smá kjánaleg tilfinning en þetta er nú víst þannig. Ég mun kannski hitta hann, maður veit aldrei.

Í gær gerði ég svo ekki neitt nema sofa. Svaf ekkert rosa vel í þessari útilegu vegna svefnleysi hinna og vegna þess að e´g var ekki með dýnu né kodda og rosalega lélegann svefnpoka sem gerði það að verkum að mér var rosa kalt og ílt í bakinu. Kom semsé heim og rotaðist. Ágætt.

í dag hélt ég ágætlega upp á daginn. Skellti mér í "fínu" fötin og ákvað að baka nokkra íslenska kanelsnúða. Fór svo að hjálpa Chantal í garðinum og gerði herbergið mitt fínt. Fór nú þó ekki lengra en í garðin því það rignir eins og mígandi belja (máltæki á frönsku!!! haha:D) Núna sit ég inni í herbergi og bíð eftir því að það sé kallað í mat. Það rignir og rignir og auk þess eru þrumur og eldingar. Já svona er veðrið gott í suður Frakklandi!!!! Vonandi kemur sólin með mömmu og pabba

Allavegana þá sjáumst við eftir 19 daga
Bises

Les vacances!!

13. júní 2008 klukkan 13:45

Alors.

Coucou toute le monde pour une fois je fais mon blog en français.

Bon alors

La dernière journée d’école était hier. 3 heures de math et 1 heure et demie de physique. Youpi.:D Maintenant c'est fini. Il ne reste plus que le Bac, mais bon je pense que je ne vais pas révise grand-chose, j’irai juste pour essayer, pour voir comment sa se passe :D Un grand sourire sur mon visage, mais quand même un petit peu de tristesse aussi. Parce que maintenant quand j’ai fini l’école ca veut dire que je rentre bientôt en Islande. Et ca me fait un peu peur de rentrer en Islande. Maintenant vous me demandez : « mais pourquoi ? » J'ai changé enormement. Ca me fait super peur si rien n’a change sauf moi. C’est tout super bizarre en fait.
Mais bon. Il reste encore 25 jours en France ou pas en Islande. Ouais, parce que j’y vais en AUTRICHE avec ma famille :D :D Ca sera super je pense. Un peu difficile aussi, 7 dans la voiture pendant 14 heures mais ca sera comme même SUPER.

Il y a aussi ma famille islandaise qui vient bientôt. Trop de la ball :D Je vais voir ma maman et mon papa et ma sœur et son fiancé et mon neveu et ma nièce. TROP COOL.

Mais c’était super bien aujourd’hui. Moi et ma classe nous sommes allés à la Pizzeria à Tain. On a mangé une énorme pizza. Très bonne. Ils m’ont donne une feuille qui tout le monde dans ma classe ont écrit une petite mot :D Comme ils sont super gentilles.

Et maintenant j’y vais à Vans pour une week-end AFS (ma organisation) ca sera Super je pense voir toute les autres gammas :D hihi. Je vais reste à Vans pour 3 jours et après il y a ma famille qui vient.

SUPER

Mais là je vous dis :

Gros bisous et à la prochaine :D

Ragna Björk


Fyrir ykkur íslendingana sem skilja ekki frönsku þá er ég í stuttu máli að segja frá því að ég sé búin í skólanum og ég sé bráðum að fara heim. Svo er ég líka að fara til Austurríkis með fjölskyldunni minni. Svo eru mamma og pabbi og kannski systir mín að koma í heimsókn með litlu krúttlegu börnin sín. Svo allt er í góðu standi

Svo á eftir er ég að fara til Vans á AFS helgi með öllum skiptinemunum í héraðinu mínu :D jíbbi

Svo annað

hann litli frændi minn hann ÓLÍVER GÍSLI á afmæli í dag

Til hamingju með 1 árs afmælið þitt litla dúllan mín

 

Sjáumst seinna

Bisous Ragna

MYNDIR

04. júní 2008 klukkan 19:25
Var að setja inn fullt af myndum inn á Picasa síðuna mína
Endilega tékkiði á þeim.
koma myndir núna næstum því daglega svo
Tékk it out

Svo kem ég nú bráðum heim eða þann 6 júlí um 3 leitið ef ég man rétt svo endilega búið ykkur undir fullt af knúsum :D

já svo fyrir hina skiptinemana sem eru að fara út og eru kannski að lesa bloggin mín einstaka sinnum (þegar ég blogga)
Endilega ef að þið hafið spurningar commentið eða sendið mér mail eða e-h man að þegar ég var að fara út þá vildi ég vita svo mikið en gat engann spurt. Ekki vera feimin ég bít ekki :D:D
ragna-bjork@hotmail.com

GROS BISOUS

Ragna Björk aka Ranja l'islandaise

Afmæli :D

02. júní 2008 klukkan 20:44
Í dag á hún Guðrún Gísladóttir, kölluð Dúdda afmæli
Dönskukennari og íþróttakennari og barnakennari og bókasafnsfræðingur og ég veit ekki hvað og hvað
en þekktust er hún fyrir að vera bestasta mamma í heimi :D:D



Til hamingju með daginn elsku mamma mín
Ég elska þig alveg ROSALEGA MIKIÐ

ALLEZ LES VERTS!!

18. maí 2008 klukkan 09:34
Dans les vestiaires avant de rentrer

Pour commencer à nous échauffer
Tous en chœur nous chantons
On est les rois du ballon
Quand on arrive sur le terrain
On les entend frapper dans leurs mains
Avec eux nous chantons
Saint-Étienne sera champion

Allez,
Qui c'est les plus forts
Évidemment c'est les Verts
On a un bon public
Et les meilleurs supporters
On va gagner
Ça c'est juré
Allez

Allez,
Qui c'est les plus forts
Évidemment c'est les Verts
Nous on joue au football
Et on n'a pas de frontière
Main dans la main
On va plus loin, plus loin
Allez, Alleeeeeeez les Verts

Les supporters sont venus de loin
Ils sont fidèles, ils nous aiment bien
Ils font sauter les bouchons
Quand Saint-Étienne est champion

Já fór að sjá AS St Etienne spila ógleymanlegann fótbolta í gærkvöldi.
Þegar við komum til St Etienne þá rigndi eins og helt væri úr fötu. Ég er að tala um að eftir að hafa labbað um 10 metra þá var ég orðin RENNANDI blaut. En það var bara hluti af stemningunni :D
Keyptum okkur fræga St Etienne Kebab og svo var auðvitað farið í AS St Etienn búðinna og treyjan keypt.
Svo byrjaði leikurinn
AS ST Etienn vs AS Monaco
Eftir 4 mínútna leik kemur fyrsta markið 1-0 fyrir ASSE
Vorum varla sest niður eftir að hafa fagnað þegar 2 markið kemur og 6 mínútu. 2-0 fyrir ASSE
Ógleymanlegt. Á 6 mínútu voru við byrjuð að syngja sigurlagið :D:D
Það voru um 34237 stuðningsmenn á vellinum og um 200 fyrir Monaco
Við sungum eins og brjálaðingar þegar svo 3 markið kom á 33 mínútu. Semsé 3-0 fyrir ASSE
Þá kom hálfleikur. Róuðum okkur niður keyptum Fanta og tókum nokkrar myndir.
Seinni hálfleikur byrjaði. Sáum að Stefanoisarnir (st Etienne) voru búnir að draga sig svolítið til baka í vörn. En það var allt í lagi. Voru samt að koma með góð færi. Svo allt í einu byrjuðu þeir að spila eins og vitleysingar. Fóru einfaldlega að leika sér með boltann. Vitandi örugglega það að þetta var síðasti leikur ársins og sem þeir voru búnir að vinna. Svo þeir byrjuðu að leika sér eins og litlir krakkar. Komu þvílík færi. Vorum því byrjuð að spurja okkur hvenar 4 markið kæmi.
Það kom á 82 mínútu. 4-0 fyrir ASSE
Þá var fagnað Kveikt á blisum í stúkunni. Sungið hástöfun:
ALLEZ LES VERTS, ALLEZ LES VERTS
Alveg þangað til að flautað var af. Þá varð allt vitlaust því að AS St Etienne væri örugg í 5 sæti deildarinnar og þá á leiðinni á UEFA. Aðdáendurnir byrjuðu að hlaupa inn á völlinn og allt varð vitlaust !!! Horfðum að aðdáendur og leikmenn leika sér á vellinum. Talandi í míkróinn og syngja eins og vitleysingar.
Ákváðum þó að halda heim því að litla afmælisbarnið hún Emma var orðin þreytt og svo langur dagur í dag.
Á leiðinni heim höfðum við alla glugga opna með treflana okkar úti og sungum hástöfum með öllum hinum stuðningsmönnum St Etienne.
Semsé í stuttu máli AS ST Etienne vann AS Monaco 4-0

í gær fæddust semsagt 2 nýir stuðningsmenn AS St Etienne. Emma Alexandre litla guðdóttir mín og ÉG
og allir saman

ALLEZ LES VERTS, ALLEZ LES VERTS, ALLEZ LES VERTS, ALLEZ LES VERTS!!!!!!

Sumarið er komið :D

11. maí 2008 klukkan 17:14
Sól sól skín á mig
ský ský burt með þig.
Gott fyrir sólina´að gleðja sig
sól sól skín á mig.


Já sólin skín og lífið blasir við mér :D
Skólinn gengur vel. Skil meira að segja efnafræðina!!!
Franskan næstum því alveg komin. Vantar þó alltaf orðaforða en málfræðin komin 98%.

Er í 5 daga fríi. Búin að vera að leika mér með næstum því 8 ára gamalli litlu systur minni i sundlauginni í garðinum. Liggja í sólbaði og hafa það rosa kósý síðustu 3 daga.

Sit núna í rólegheitunum inni í herberginu mínu með fartölvuna mína í fanginu og hlusta á rigninguna berjast við gluggann minn og eldingarnar sem koma alltaf nær og nær. Ekki slæmt þar sem að ég ELSKA þrumur, eldingar og rigningu.
Skrítið þó því í morgun þá var ég í sundlauginni minni og það var 28° hiti. En það þarf víst líka að vökva blómin annars sviðna þau greyin.

Annars eins og þið heyrið er allt gott að frétta. Nantes var alveg frábærlega gaman. Skoðaði bæjinn sem er sko ekkert eins og bæirnir hérna í suðrinu. Miklu "Evrópulegri". Venjuleg hús og allt önnur menning.
Dýfði tánum mínum í Atlantshafið og hugsaði í leiðinni til Íslands sem virðist alltaf að færast nær og nær. Minna en 2 mánuðir þangað til ég kem heim. Rosa skrítið.
Ferðaðist um Nantes á fílsbaki! Já muniði eftir Risessunni sem kom til Íslands síðasta eða þarsíðasta sumar??? Jú þetta er einmitt fíllinn hennar. En hann kom því miður ekki til Íslands en venjulega er hann í för með henni :D:D Það var rosa gaman.
Fór í skemmtigarðinn Puy du Fou. Vá það var ótrúlega gaman. Garður sem er með fullt af "leikritum". Eða semsé fullt af spectacle. Galdramenn, leikrit, Galdiator, Víkingar, fuglar, brúðuleikhús og fl. Alveg ótrúlega gaman.
Það rigndi þó svolítið mikið á okkur þarna í norðrinu en ekkert til að væla yfir. Hafði það alveg rosa gott.

Kom svo heim eftir 9 klukkutíma akstur og fór daginn eftir í dýragarðinn Pougres sem er hérna rétt hjá. Kíkti á öll dýrin og skemmti mér eins og litlu barni. Leið eins og mér væri um 6 ára. Lék mér meira að segja með litlu krökunum í Risa stórum kastala með fullt af rennibrautum :D:D Um kvöldið fór ég svo í stelpukvöld til Laurie. Gláptum á kvikmyndir og borðuðum óhollan og hollan mat eins og er alltaf gert á stelpukvöldum. Fórum svo að sofa klukkan 5 um morguninn :D:D

Svo upp á síðkastið er ég bara búin að vera í skólanum en þó rosa takmarkað því það eru verkföll í frakklandi. Bæði kennara og nemenda. Annaðhvort mætti kennarinn ekki í vinnuna eða þá að það vantar helminginn af bekknum. Bíð bara eftir því að nemendurnir blokki skólann eins og var gert í fyrra. ;D Þá kemst ég ekki inn og get ekki farið í skólann. Þá get ég bara kúrað í sundlauginni minni :D alls ekki slæmt

En já kem semsé heim þann 6 júlí 2008 einhverntímann eftir hádegi. Þannig að gerið ykkur tilbúin. Ég á sko eftir að knúsa ykkur öll eins og ég hafi ekki séð ykkur í heilt ár!!!

Hef það ekki lengra er farin að borða eða hoppa í pollunum úti í rigningunni. Erfið ákvörðun


Í rigningu ég syng,
í rigningu ég syng.
það er stórkostlegt veður
og mér líður svo vel

GROS BISOUS
Ragna björk


Bonjour

15. apríl 2008 klukkan 20:32
jæja þá er sko LANGT síðan ég bloggaði síðast en ætla að reyna að bæta það upp núna:D

Jæja er búin að gera allt í heiminum síðustu 2 mánuðina
Byrja þó frá byrjun

Þann 19 febrúar fór ég í ýkt skemmtilegt partý hjá henni Laurie. Þar var svaka stuð skemmti mér alveg konunglega með henni Léu minni og Laurie og öllum þarna. Allt fólk úr sacrée coeur en það er allt  í lagi. :D


22 febrúar fór ég svo til Lyon í verslunarferð. Þar kíkti ég smá í HM en fann næstum ekki neitt. Skrítið en það skiptir engu. Enduðum daginn 3 skvisurnar ég léa og Carole með Hagen daas ís í stærsta molli i Lyon, með nokkra inkaupapoka :D

Daginn eftir var svo alveg ÓGISLEGA gott veður. Við settumst út fjölskyldan og borðuðum rosa góðann mat eins og alltaf. Svo hringdi papi Claude og spurði hvort ég væri til í að koma til La Roche de Glun og sigla með honum á seglbátnum sínum. ég og Valentin ákváðum að fara þangað saman hjólandi. Rétt um 12 kilometrar. Hólaði þangað í stuttbuxum og hlírabol þann 23 febrúar!!! frekar kjánalegt en var nu samt að stikna úr hita. þar skelltum við okkkur á Rhone og sigldum um í um 2 tíma. Svo var hjólað heim í góða veðrinu :D Um kvöldið var svo hoppað upp í bíl og haldið til Marseille yfir helgina.

24 febrúar vaknaði rosa hress í Marseille með öllum. Gistum hjá frænda og frænku Jérômes sem eru alveg ótrúelga næs. Borðuðum morgunmat og héldum svo upp á spítala þar sem ég hitt hann Vincent sem er lítill gutti með downs heilkenni. Hann er sonur guðföðurs Léu. En hann var að koma úr hjartaskurðsaðgerð. Honum heildaðist bara rosa vel og hlakkar alveg rosa mikið til að komast út. Hann var líka svo rosa ánægður að sjá hana Léu að hann sagði ekkert annað en Léa það sem eftir var dagsins. Eftir að við skildum við Vincent fórum við krakkarnir svo á la canebiére sem er frægasta gata Marseille. kíktum á bátana og kyrkjurnar og þóttumst vera Englendingar :D:D rosa gaman. Héldum svo "heim" borðuðum kvöldmat og fylgdumst með Emmu framkvæma töfrabrögð :D Rotuðumst svo uppi í rúmi :d

Daginn eftir var Marseille tekin með trompi. eða þannig. Fórum í rosa langan göngutúr um ströndina þar sem ég dýfði tánnum í miðjarðarhafið, og Léa öllum líkamanum. Já hún er svolítið coucou í hausnum. enda var eki alveg veður til þess að baða sig í sjónum en hún gerði það nú samt sem áður. !!! Snargeðveik. Eftir göngutúrinn kítum við svo í litla kirkju sem er rosa sæt og héldum svo heim á leið til St. jean de muzols ;D

28 febrúar fór ég svo að sjá húsið hans Facteur Cheval. Ekkert smá flott. Hann er sjúkur þessi náungi. Semsé lítil höll sem hann byggði á 30 árum úr steinum, sandi og skeljum!! Ekki slæmt. hún er 9x5x6 metrar. Ekki slæmt... En hún er líka alveg rosa flott. En já hann byggði hana aleinn og meira að segja Pablo Picasso hitti hann einu sinni og hreifst af þessari listsköpun. Semsé fyrirmyndarhöll :D

Þann 1 mars var svo farið á tónleika Calogero í Valence. Þetta voru GEÐVEIKIR tónleikar og ég elska þennan söngvara. Ekkert smá góður en á frönsku. gæti lýst honum sem svolítið rokkuðum coldplay. En já fór með chantal, Apolline og Léu og skemmtum við okkur allar konunglega :D

daginn eftir tónleikana og þar með einnig síðasta dag febrúarfrísins var farið á skiði í Ölpunum og ég á nýju skíðunum mínum. Ekkert smá stórt svæði vá ENORME!!! Já en það var rosa gaman fór með fjölskyldu systur Chantal. já skíðuðum eins og vitleysingar frá 9 ummorguninn til 5 um kvöldið. Fór í allar brekkur hvort sem þær voru merktar grænar eða svartar :D rosa gaman. Komum svo heim um 8 leitið. Borðuðum kvöldmat og rötuðumst uppi í rúmi :D

16 mars var svo afmælisveisla papi Réne sem varð 70 ára. Þá var farið á rosa flottann veitingastað og borðað rosa góðann mat. Spjallað og og hlegið. Eftir matinn fórum við svo til papi réne og mamie Paulette og borðuðum meira. já ég geri ekkert nema borða :D Enþað er allt í lagi. Maður á að njóta lífsins ekki satt :D

Daginn eftir kom svo Aurelía í heimsókn. En hún annar skiptineminn sem var í þessari fjölskyldu í fyrra. Hun er ítölsk. húner líka alveg rosa næs. Já blöðruðum um allt milli himins og jarðar með þessari stelpu sem er alveg sjúklega gáfuð. Tók Bac prófin á Terminal L og náði ekki bara öllum heldur var með hæstu meðaleinkunina í sínum skóla sem er kaþólsku einkaskóli sem tekur bara inn gáfaða krakka held ég. EN þótt hún sé nú ekki vitlaus þá tóks henni að næla sér í eitt stikki Búlemíu og ældi alla vikuna sem hún var hjá okkur sem var yfir páskana. frekar sorglegt en svona er þetta. Hún er þó betri núna því chantal hringdi í mömmu hennar í ítalíu og bað hana um að senda Aurelíu til Geðlæknis sem er núna að vinna í heinni.

þann 21 mars var svo Chantal kosinn varaforseti bæjarráðs st. Jean de muzols. Við fórum 4 stelpurnar. ég Chantal Léa og Aurelía og héldum upp á þetta með forseta bæjaráðsins og ölum hinum :D Claude og Auguste sem búa í Marseille komu svo í heimsókn um kvöldið og í fylgd með Alexandro frá Mexico. Sem er frændi Temo sem bjó hérna með Aurelíu í fyrra. Með AFS.

Daginn eftir var svo farið í afmælisveislu til hans Papi claude sem varð 60 ára gamall. Þar var aftur borðaður rosa góður matur. Og líka spjallað hlegið og sungið eins og vitleisingar. Rosa gaman. Eftir matinn var svo farið í langann göngutúr um svæðið og svo haldið niður á Scooter. þegar ég kom svo loksins niður þá held ég að lappirnar á mér hafi verið FROSNAR. GAt varla labbað.

23 mars. PÁSKAR. Vaknaði snemma með smá hálsbólgu en lét það ekki á mig hafa og skellti mér til Etables til að fara í messu með fjölskyldunni. smá páskamessu :D Þegar ég hugsa útí það núna þá finnst mér bara ósköp eðlilegt að fara í messu. ÞEgar ég kom fyrst til Frakklands þótti mer það ekkert smá kjánalegt að fara í messu á hverjum einasta laugardegi eða sunnudegi en núna þá er það bara sjálfsagður hlutur sem ég mun jafnvel sakna smá þegar ég kem heim :D:S Allavegana eftir messu var kíkt il Cecile og Hervi og thibaut og co og keypt súkkulaði og paskaegg til að borða í hádeginu. Fórum svo heim og gerðum húsið tilbúið fyrir gestina. í hádeginu komu svo ALLIR í mat. mamie Paulette og Simone, papie Claude og Réne og bróðir jéromes. Fyrir voru svo Emma, Apolline, Léa, ég, Valentin, Auralía, Chantal, jérome, Claude, Auguste og Alexandro. Semsé 16 manns sem borðuðu rosa góðann mat og páskaegg frá foreldrum Thibaut :D:D Rosa góðir páskar. Enda gæddum við okkur líka á íslenskum páskaeggjum. Það toppaði allt. Takk mamma og amma Sigga (K)

Annar í páskum tók svo til að SNJÓA í vallie de Rhone sem er frekar skritið enda snjóar ALDREI. Það gerði það að verkum að það komst enginn út úr húsi þvíað allir eru svolítið hræddir við snjóinn!! haha ÞAð voru allri fastir heima hjá sér. En það enntist þóekki lengi því hann var horfinn um 11 leitið um morguninn haha :D:D

Þann 29 mars var svo fagur hópur skiptinema sem hittist í Lyon. Semsé. ég ingrid Jess Suzy og Elisabeth. Sem hittumst fyrir surprize afmælið hans Rutger. Rutger hélt sem sé að Ingrid væri að koma til lyon til að versla en Suzy hafði beilað á hana og því væri hún að koma ein. Hittumst allar á lestarstöðinni og hlupum út um allt til að kaupa í matinn. Svo hittum við Rutger í mollinu allar með hatta og blöðrur syngjandi afmælissönginn. Hann varð ekkert smá hamingjusamur enda orðinn 18 ára guttinn. Fundum svo risastórann garð sem við settumst í og héldum smá picnic til heiðurs Rutger. Skemmtum okkur konunglega :D:D héldum svo heim um kvöldið öll með bros á vör:D

Á afmælisdaginn hans Gísla eða 2 apríl fór ég svo í steinaleit með bekknum mínum þar sem við byrjuðum á því að leita af steingerfingum og svo var litið á Joujac sem er yngsta eldfjall í Ardeche en það gaus fyrir 9000 árum!! já fannst það svolítið kaldhæðnislegt en allt í lagi. Skemmti mér konunglega. Bekkurinn algjört æði eru aðeins að byrja að opna sig en þó tekur það langann tíma. ;D en já svaka gaman. :D

5 apríl var svo alveg ótrúlega gott veður svo ég Ingrid og Elsa kíktum til Valence og böðuðum okkur í sólinni. Byrjðuðum þó á smá verslunarleiðangri, ég keypti mer ballerínuskó og kjól. EFtir búðaráp fórum við svo í garðinn þarna en byrjðuðm þó á þvíað kaupa ís og jarðaber. lágum svo þar í sólinni eins og skötur það sem eftir var dagsins :D Rosa rosa rosa fínt

Svo þann 10 apríl var svo farið í Páskafrí. semsé heilum mánuði of seint en það skipti engu.
En ég fór til ÍTALÍU!!!!!!!!!!!!!!!!!

Vá mesta snilld í heimi. Skemmti mér svo ótrúlega vel. Fór með skólanum hennar Léu sem er kaþólsku einkaskóli og var farið til Assisi í Ítalíu til að fræðast um líf saint Francois og sainte Claire. Hélsum af stað um 8 leitið þann 10 apríl og vorum komin til Assisi um 11 leitið morguninn 11 apríl. Semsé 13 klst í rútu!!!!!!!!!! GEðveiki. Ekki nóg með það þá var ekki stoppað á hótelinu til að sofa eftir þessa 13 tíma heldur var farið beint til Assisi til að byrja daginn!!! Byrjað var að skoða kyrkju st Francois og svo var labbað alla leið upp á fjallið þar til að skoða kastala. um 5 leitið löbbuðum við svo upp á hótel sem var ekki í Assisi tók um 20 min. komum þangað borðuðum fórum í messu og rotuðumst upp í herbergjum.

12 apríl var svo vaknað snemma til að fara aftur í messu í lítilli krúttlegri kyrkju rétt fyrir utan Assisi. Eftir messu var svo labbað til Assisi og skoðaðar allar kirkjurnar í bænum sem tengjast st. Francois og ste. Claire. En það rigndi og rigndi og rifndi!!! En eins og þið vitið þá er ég alltaf bjartsýn svo ég sagði við krakkana að hafa ekki áhyggjur sólin kæmi fyrr eða síðar. Í hádeignu gerðist svo undur og stórmerki sólin kom loksins og við lágum fyrir utan kyrkju st Francois í sólbaði næstum allur hópurinn :D geggjað
Fórum svo í skoðunartúr um kyrkjuna með öllu tilheyrandi. Rosa fínt. Enda svaka flott kirkja.
Fengum svo smá frían tíma til að leika okkur í Assisi þar keypti ég mér pasta og ítalskann kúluís. Fann meira að seigja frönsku landliðstreyjuna í fótbolta. rosa hamingjusöm :D verður set upp á veggá íslandi :D Eftir fría tíman var svo hoppað upp í rútu og farið í aðra kirkju í öðrum bæ. Þar var lítil kapella innií risastórri kirkju. En það var í þessari kyrkju sem st Francois dó. komum svo heim og borðuðum og sofnuðum svo dauðþreytt eftir daginn.

13 apríl var svo vaknað snemma til að fara í göngutúr. Já þá tala ég um alvöru göngutúr. tók okkur 2 klst að komast upp á topp og 2 til að fara niður!!! já þetta var svakalegt. en alveg fáránlega fallegt. höfðum það líka alveg rosa fínt. Þegar við loksins komumst upp á topp borðuðum við hádegismat og svo var haldið niður. Áleiðinni niður litum við í lítinn bæ þar héldum við litla sunnudags útimessu. Eftir messuna héldum við svo til Assisi þar sem við fengum smá frítíma sem ég notaði til að kaupa ís og skemmta mér með krökkunum. Rosa fínt þau eru svo yndisleg. :D
Komum svo í hús kl 7 og borðuðum kvöldmat. svo var smá kvöldvaka þar sem farið var í leik og sungið og skemmt sér.
Rotuðust svo allir klukkan 11 enda algjörlega ónýt eftir daginn!!

14 apríl var vaknað snemma til að halda heim á leið en fyrst var stoppað í Pisa til að sjá skakkaturninn. Fengum þó rétt um 30 min af 2 tímum sem var áætlað í byrjun því við lentum í umferðarteppu. Sind því það hefði verið rosa fínt að vera þarna í smá tíma. Eftir hálftímann var svo hoppað upp í rútu og næsta stopp var rétt við landamærin eð um 30 km í burtu en þó ennþá í ítalíu. Þar var borðaður kvöldmatur. Var svo ekkert smá hamingjusöm því ég fnan FRANSKA FÁNANN að lokum en ég er búin að vera að leita af honum út um allt. Sem endaði með því að ég fann hann í ÍTALÍU. Smá kaldhæðni í því ekki satt. en allavegana. eftir matinn var svo hoppað upp í rútu og næsta stopp var svo Tournon! Jahá komum svo til Tournon kl 10 og ég var komin heim um 10:30. Þar hennt ég mér upp í rúm smá leið yfir því að þetta væri búið enda ekkert smá skemmtileg helgi/vika. En svo steinsofnaði ég.

Í dag tók ég svo upp úr ferðatöskunni og setti aftur í hana því ég er að fara til Nantes í fyrramálið! já ég er mikið á ferðinni. Kem heim næsta þriðjudag. Það verður spennandi. Dvel þó ekki í Nantes heldur í lítlu þorpi við ströndina. Ætla rétt að vona að það verði gott veður því þá mun ég vera á ströndinni eða í garðinum í sólbaði :D:D Það er allt hægt fyrir vitlausa íslendinga eins og mamma mín segir hérna. Þegar ég er að kafna úr hita þá segir hún já bíddu bara þangað til í mai þá áttu eftir að deyja því þetta er ekki neitt. Svo ég bíð og bíð. :D:D:D

jæja ætla ekki að hafa þetta mikið lengra.
ég verð svo líka að kalla ykkur hetjur ef þið komust í gegnum allt þetta því þetta er LANGT en nújæja enda 2 mánaða blogg :D:D

Allavegana þangað til næst þá bara
sjáumst við. A bientot (K)
bisous

Ragna Björk aka Ranja l'islandaise


ps. þá minni ég á myndasíðuna mína http://picasaweb.google.com/ragbbra
þar getið séð allar myndir sem eg tek í frakklandi

MOI

  • Nafn: Ragna Björk Bragadóttir
  • Netfang: ragna-bjork@hotmail.com
  • Staður: 07300 ST JEAN DE MUZOLS
  • Heimilisfang: 18, Chemin du Chambon
  • Um mig: Ung snót sem ákvað að leggja land undir fót og flytja í heilt ár til Frakklands.